Ég er að fara til Lugo á morgun sem er bær hérna rétt hjá til
þess að fagna með innfæddum degi Galisíu. Svo sá ég þessa frétt á
mbl.is
Spænska lögreglan aftengdi sprengju í Galisíu
Spænska lögreglan greindi frá því í dag að hún
hefði náð að aftengja heimatilbúna sprengju sem hafði verið komið
fyrir fyrir utan verktakafyrirtæki í Lugo, sem er í héraðinu
Galisíu í norðvesturhluta Spánar. Talið er að hópur þjóðernissinna
á svæðinu hafi komið sprengjunni fyrir.
Fréttastofan Europa Press hefur eftir
lögreglumanni að sprengjan hefði getað valdið gífurlegu
manntjóni.
Nokkrar fréttastofur í Galisíu fengu sendan
tölvupóst á tungu Galísíu-manna þar sem varað var við sprengjunni
og þar stóð m.a.: „Á móti eyðileggingu, almenn andspyrna.“
Manuel Ameijeiras, héraðsstjóri Galisíu, sagði
við blaðamenn að hann viti hvaða hópur hafi komið sprengjunni
fyrir. Hann segir hópinn einblína sérstaklega á
verktakafyrirtæki.
Hann greindi hinsvegar ekki frá því um hvaða
hóp hafi verið að ræða. Nokkur keimlík atvik hafa komið upp í
héraðinu og grunar lögreglu að um fámennan hóp þjóðernissinna í
Galísíu sé að ræða.
Ætli þeir séu að mótmæla komu minni?
Svo sá ég líka þessa frétt
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1269717
Ég ætla rétt að vona að hið svokallaða R-lista
bandalag komist ekki til valda, þá er ég allaveganna ekkert á
leiðinni heim.